Skip to content

Reiknivél fyrir öryggis- og myndavélakerfi

BLÁBERG · REIKNIVÉL

Þitt húsnæði.
Þinn búnaður. Ein karfa.

Reiknaðu út hvað þú þarft í öryggiskerfi, myndavélakerfi eða hvort tveggja. Veldu fjölda, sjáðu alla íhluti og bættu búnaðinum beint í körfuna.

Verð og heildarsumma birtast í körfunni áður en þú kaupir.

Setja saman kerfi

Byrjaðu á dæmi eða veldu sjálf/ur

Dæmi um samsetningar sem þú getur aðlagað. Þau eru upphafspunktur, ekki fullbúin hönnun fyrir þitt húsnæði.

Hvað viltu setja saman?

Húsnæðið þitt

Við breytingu á húsnæði eða stærð birtist ný upphafstillaga. Þú getur svo breytt öllum fjöldum sjálf/ur.

Tenging og rafmagn

WiFi er oft góður kostur á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar þar sem fast internet er stöðugt. 4G + WiFi hentar sérstaklega í dreifbýli, bústöðum og þar sem þú vilt varatengingu.

Veldu skynjara

Veldu heildarfjöldann sem þú þarft, ekki fjölda aukaskynjara. Hér sérðu hvað fylgir grunnpakkanum og hvað þarf að bæta við. Innifalinn búnaður fylgir alltaf, jafnvel þótt þú veljir færri.

Einn nemi á hverja opnun sem þú vilt vakta.
Veldu rými og gönguleiðir sem á að vakta.
Veldu eftir rýmum, hæðum og fyrirliggjandi vörnum.
Til dæmis við þvottavél, uppþvottavél eða vatnsinntak.

Fjöldatillögur eru upphafspunktur, ekki mat á fullnægjandi brunavörnum. Staðsetning og þörf reykskynjara ræðst af rýmum og notkun, ekki flatarmáli einu.

Myndavélar og sjónarhorn

Tölurnar eru heildarfjöldi, líka þegar myndavél fylgir öryggispakka. Hver innivél er því aðeins talin einu sinni.

WiFi myndavélar með minniskorti fyrir valin rými.
Útivél með WiFi og 64 GB korti. Þarf rafmagn.
WiFi eða netsnúra, 128 GB kort. Þarf rafmagn eða viðeigandi PoE búnað.
Rafhlaða og sól. Fyrir staði án WiFi, með farsímasambandi.
Innimyndavélar, Léttsýn og Hörpusýn þurfa nettengingu og rafmagn. Veldu eftir sjónarhornum og athugaðu samband þar sem hver vél á að vera. 4G + WiFi öryggisstöð útvegar ekki internet fyrir myndavélar.

Uppsetning og upptökur

Uppsetning, akstur og þjónusta eru verðlögð sérstaklega. Fyrir fleiri byggingar þarf að meta hverja byggingu og tengingar á milli þeirra.

ÁÐUR EN ÞÚ BÆTIR VIÐ

Það eru vörur í körfunni

Viltu halda þeim og bæta við, eða tæma körfuna og setja aðeins þessa samsetningu í hana?

    Spurningar um samsetninguna

    Hvernig er komið í veg fyrir tvítalningu?

    Reiknivélin velur grunnpakka sem passar við búnaðinn og dregur innihald hans frá viðbótunum. Samantektin sýnir hvað fylgir pakkanum og hvað bætist við. Hún ber ekki saman öll möguleg tilboð eða lofar lægsta verði.

    Get ég reiknað fleiri en eina byggingu?

    Já, settu saman eina byggingu í einu og bættu henni í körfuna. Ef vörur eru þegar í körfunni velurðu hvort þær haldist eða hvort karfan verði tæmd fyrir nýju samsetninguna. Fyrir margar byggingar, húsfélög og umfangsmikil fyrirtækjakerfi mælum við með að fá búnaðarlistann yfirfarinn og sértilboð í uppsetningu og tengingar.

    Get ég fengið tilboð út frá valinu?

    Já. Hnappurinn „Fá ráðgjöf og tilboð“ er alltaf í samantektinni og opnar tölvupóst með búnaðarlistanum. Bættu við staðsetningu og lýsingu á húsnæðinu áður en þú sendir. Karfan sýnir verð á völdum vörum, ekki heildarkostnað við þjónustu.

    Nánar um öryggiskerfi · Nánar um myndavélar · Staðsetning og persónuvernd · Hafðu samband

    Vörurnar í reiknivélinni