Skip to content

Stöðusýn – þín sýn á staðnum

Stöðusýn · Myndavélakerfið frá Bláberg

Þín sýn.
Á þínum stað.

Drifið af gervigreind og hannað af Bláberg út frá þörfum viðskiptavina okkar. Myndavélar og upptökur í einu íslensku viðmóti, á tölvu hjá þér.

Stöðusýn viðmótið með yfirliti yfir myndavélar
STÖÐUSÝN · ÞÍN SÝN Á STAÐNUMSÝNISHORN
Í beinni · 4 myndavélarYfirlit 2 × 2
InngangurTilbúið kynningardæmi: inngangurBláberg
HjólageymslaTilbúið kynningardæmi: hjólageymslaBláberg
BílakjallariTilbúið kynningardæmi: bílakjallariBláberg
GarðurTilbúið kynningardæmi: garðurBláberg
Kynningarmynd: viðmót Stöðusýnar með tilbúnu myndefni. Greiningarrammar og prósentur eru til sýnis.

Stöðusýn getur meira.

Frá beinu áhorfi og snjallri leit að timelapse og norðurljósavakt.

Beint áhorf

Sjáðu allar myndavélarnar á einum skjá eða stækkaðu þá sem þú vilt skoða.

Upptökur og tímalína

Veldu myndavél og tímabil. Flettu atvikum og finndu rétta augnablikið.

Leitaðu á ákveðnu svæði

Dragðu ramma yfir hluta myndarinnar á valinni myndavél og finndu greind atvik þar, til dæmis fólk við dyr eða bíla á stæði.

Staðbundin myndgreining

Greindu meðal annars fólk, bíla og dýr. Grunnmyndgreining vinnur á búnaðinum hjá þér.

Vistaðu og sæktu myndskeið

Sæktu atvik eða valið tímabil. Geymdu mikilvægu augnablikin í Úrvali.

Aðgangur undir þinni stjórn

Úthlutaðu notendum aðgangi og stilltu hvaða myndavélar hver og einn má sjá.

Timelapse

Þjappaðu klukkustundum eða dögum í stutt myndskeið. Fylgstu með framkvæmdum, veðri eða breytingum á staðnum.

Valfrjáls viðbót

Talning og yfirlit

Skoðaðu umferð fólks eða farartækja og berðu saman tímabil með talningu og skýrslum.

Valfrjáls viðbót

Tilkynningar um atvik

Veldu hvað skiptir máli og hvenær. Fáðu tilkynningar samkvæmt reglum sem henta þínum stað.

Valfrjáls viðbót

Hraðyfirlit

Fáðu stutt myndrænt yfirlit yfir virkni á löngu tímabili og farðu síðan nánar í atvikin.

Valfrjáls viðbót

Norðurljósavakt

Með hentugri myndavél sem horfir til himins má greina norðurljós og varðveita þau í hraðspilun.

Valfrjáls viðbót

Fjaraðgangur í vafra

Opnaðu kerfið um dulkóðaða og aðgangsstýrða gátt Blábergs þegar þú ert fjarri staðnum.

Valfrjáls viðbót

Viðbætur, fjaraðgangur og þjónusta eru valin eftir þörfum og verð gefið í tilboði. Virkni fer eftir búnaði, uppsetningu og þeim viðbótum sem eru virkjaðar.

Þinn búnaður. Þitt myndefni.

Upptökurnar eru hjá þér.

Upptökur og grunnmyndgreining fara fram á staðnum. Þú stjórnar aðgangi og geymslutíma.

Án skylduáskriftar

Staðbundið áhorf, upptökur og grunnmyndgreining fylgja kaupum á kerfinu.

Virkar við netrof

Staðbundin notkun heldur áfram meðan rafmagn og staðarnet virka.

Þjónusta að þínu vali

Fjaraðgangur um gátt Blábergs er valkvæð þjónusta gegn gjaldi. Þú færð tilboð miðað við þínar þarfir.

Fjaraðgangur opnast í vafra um dulkóðaða, aðgangsstýrða gátt og þarf nettengingu. Upptökurnar eru áfram geymdar á staðnum. Við gerum tilboð í fjaraðgang, þjónustu og viðbætur.

Nýttu það sem þú átt

Passar við þinn stað.

Stöðusýn vinnur með Hörpusýn og Léttsýn frá Bláberg. Einnig er hægt að tengja myndavélar frá Hikvision, Dahua, Reolink, Amcrest og Uniview sem bjóða staðbundinn myndstraum um ONVIF eða RTSP.

Það fer eftir gerð og stillingum myndavélarinnar hvaða virkni er í boði. Sendu okkur gerðina; við staðfestum tengingu og hjálpum þér að nýta búnaðinn sem þú átt.

Upptökur og tímalína í Stöðusýn
Upptökur og tímalína. Útlit fer eftir útgáfu og uppsetningu.

Fyrir húsfélög

Við sjáum um atvikaleitina.

Þið segið okkur frá atvikinu. Við finnum upptökuna.

Bláberg getur annast atvikaleit að beiðni stjórnar eða tilnefnds tengiliðar húsfélagsins. Við förum yfir upptökurnar og finnum viðkomandi myndskeið, svo húsfélagið þurfi ekki sjálft að sinna leitinni. Þjónustan er valkvæð og veitt samkvæmt samkomulagi og tilboði.

Komum þér af stað.

Segðu okkur frá staðnum og myndavélunum. Við finnum réttu lausnina saman.

Hvað vilt þú sjá betur?

Segðu okkur frá staðnum og því sem þú vilt geta gert. Við hjálpum þér að velja búnað, viðbætur og þjónustu og gerum tilboð við hæfi.

Ég vil sýna vefmyndavél eða útsendingu á vefsíðu eða með deilanlegum hlekk. Skoða Beint streymi →

* Nauðsynlegir reitir. Upplýsingarnar eru notaðar til að svara fyrirspurninni.