Er loftið þungt og staðið?
Fáðu skýra mynd af CO₂, hita og raka í rýmunum þínum. Við mælum samfellt yfir nokkra daga og tökum niðurstöðurnar saman í eina aðgengilega skýrslu með gröfum, viðmiðum og tillögum að næstu skrefum.
Fá tilboð í mælinguSkoða sýniskýrsluVindur, rigning og kuldi halda gluggunum lokuðum. Hvernig er loftið á vinnustaðnum? CO₂-mælingar hjálpa stjórnendum að meta hvenær þörf er á nánari skoðun loftskipta.
Fyrir leikskóla, skóla, skrifstofur, æfingasali og önnur rými þar sem fólk kemur saman.
Mælar sendir um land allt
Við sendum rafhlöðuknúna mæla með skýrum leiðbeiningum. Þið komið þeim fyrir í þeim rýmum sem þarf að skoða og sendið þá til baka að mælingu lokinni. Ekki þarf heimsókn frá okkur. Við lesum gögnin úr mælunum eftir skil, greinum niðurstöðurnar og tökum saman eina skýrslu fyrir öll rýmin.
Þægileg leið fyrir sveitarfélög og fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins til að fá yfirsýn yfir loftgæði. Mælitími er allt að tvær vikur eftir samkomulagi.
Frá mælingum að skýrum næstu skrefum
- Við skilgreinum verkefnið. Veljum rými, mælitíma og dæmigerða staðsetningu mæla. Skráum notkunartíma og þær aðstæður sem skipta máli.
- Mælar skrá samfellt. CO₂, hitastig og hlutfallsraki eru skráð yfir samið tímabil. Við notum INKBIRD CO₂-mæla úr vöruúrvali Blábergs.
- Þú færð eina heildstæða skýrslu. Yfirlit, samanburð milli rýma, skýr gröf og atriði sem rétt er að skoða nánar.
Hvað kemur fram í skýrslunni?
Ferlar fyrir hvert rými, meðaltöl og hámarksgildi. Notkunartími er skoðaður sérstaklega svo nætur og tóm rými skyggi ekki á álagstíma.
Mínútur og hlutfall mælitíma á hverju styrkbili, ásamt tíma yfir 1.000 ppm. Gagnagöt og flutningur mæla eru tilgreind.
Niðurstöður settar í samhengi við notkun rýma og HMS-viðmið. Tillögur um nánari skoðun loftræsingar eða endurmælingu eftir breytingar.
Nafnlaus sýniskýrsla
Hér er stutt dæmi úr raunverulegri mælingu. Nöfn, staðsetningar, dagsetningar og klukkutímar hafa verið fjarlægð. Ferillinn er nálgaður af skjámynd og nær yfir fleiri en eitt rými; hann er ekki dæmi um heila margra daga mælingu.
Litir, viðmið og tími á styrkbilum
| CO₂-styrkur | Hvernig lesum við bilið? | Í afhentri skýrslu |
|---|---|---|
| Undir 800 ppm | Undir 800 ppm viðmiðinu. | Mínútur og % |
| 800–1.000 ppm | Meta meðaltal á skilgreindum notkunartíma. | Mínútur og % |
| Yfir 1.000–2.000 ppm | Yfir skammtímaviðmiði HMS. | Mínútur og % |
| Yfir 2.000 ppm | Há gildi sýnd sérstaklega til að auðvelda lestur. | Mínútur og % |
Nákvæmar tímatölur eru ekki birtar í þessu sýnidæmi þar sem hrá mæligögn vantar. Í þjónustuskýrslu eru þær reiknaðar úr samfelldum gögnum fyrir hvert rými. Litaskipting við 2.000 ppm er framsetning okkar, ekki sérstök reglugerðarmörk.
Byggingarreglugerð, gr. 10.2.8, miðar við að CO₂ fari ekki yfir 800 ppm að jafnaði eða 1.000 ppm til skamms tíma. Við mikla líkamlega hreyfingu skal auka ferskloft samkvæmt gr. 10.2.7. Eitt stakt gildi segir ekki til um meðaltal eða hvort rými uppfylli allar kröfur.
Lesa ákvæðin hjá HMS →CO₂ gefur vísbendingu um loftskipti
Mælingarnar hjálpa til við að sjá hvernig loftið breytist þegar fólk notar rýmin. Þjónustan mælir ekki ferskloftsmagn beint og er ekki heildarúttekt á öllum loftmengunarefnum eða formleg vottun loftræsingar. Niðurstöðurnar nýtast til að ákveða hvar þörf er á nánari skoðun.
Fáðu tilboð sem hentar þínum rýmum
Segðu okkur hvaða rými á að mæla, fjölda staðsetninga og hversu lengi þú vilt mæla, allt að tveimur vikum. Við gerum tilboð miðað við umfangið.
Hafðu samband · Fá tilboðAllt að fimm mælar samtímis. Ein samantekin skýrsla. Verð samkvæmt tilboði.