Skip to content

Stöðusýn

Verð áður 0 kr - Verð áður 0 kr
Verð áður 0 kr
123,990 kr
123,990 kr - 123,990 kr
Verð 123,990 kr
SKU BERG0077

Þín sýn á staðnum.

Myndavélakerfið frá Bláberg, drifið af gervigreind og hannað út frá þörfum viðskiptavina okkar. Staðbundin grunnnotkun fylgir kaupum. Fjaraðgangur um gátt Blábergs er valkvæð þjónusta gegn gjaldi, samkvæmt tilboði.

Sjá Stöðusýn í notkun og kynnast kerfinu →

Stöðusýn er hjartað í Hörpusýn myndavélakerfinu. Lítil en gríðarlega öflug snjalltölva sem tekur við myndefni frá öllum myndavélum á staðnum og vinnur alla gervigreind, hreyfiskynjun og manngreiningu, hratt og örugglega á staðnum um leið og hlutirnir gerast. Stöðusýn er viðbót ofan á myndavélarnar sem þú átt nú þegar, hvort sem það eru Hörpusýn eða Léttsýn vélar; ekkert er rifið niður og appið sem fylgdi vélunum virkar áfram.

Það sem Stöðusýn gerir best

  • Allar myndavélar á einum skjá í tölvu: Ekki bara í símanum. Tölva, sími og spjaldtölva einnig er hægt að hafa fleiri en eina staðsetningu.
  • Gervigreind sem greinir í sundur manneskju, dýr og bíl:  Gervigreindin greinir í rauntíma. Tilkynningar verða marktækar og rétta klippan finnst á sekúndum í stað þess að spóla yfir langt tímabil.
  • Miðlæg atburðaupptaka utan myndavélanna: Safnar öllum hreyfingaratburðum á innbyggðan disk (u.þ.b. 200 til 500GB), rétt eins og NVR-upptökutæki gerir, en með nútímalegu vefviðmóti, innskráningu og aðgangsstýringu í stað NVR-valmynda.
  • Fjaraðgangur um gátt Blábergs: Valkvæð þjónusta gegn gjaldi veitir aðgang í vafra um dulkóðaða og aðgangsstýrða tengingu. Upptökur og áhorf á staðarneti halda áfram við netrof, meðan rafmagn og staðarnet virka.
  • Vex með þér: Stöðusýn er lítil tölva en ekki lokað tæki, svo hægt er að bæta við tengingum, búa til aðgangsstýrðar vefmyndavélar og margt fleira. Raundæmi: opnu vefmyndavélarnar á streymi.blaberg.is eru keyrðar á Stöðusýn.
  • Ræður við allt að 16 myndavélar með fullri gervigreind (fer eftir umsvifum svæðisins). Fyrir stærri kerfi bjóðum við öflugri Stöðusýn tæki.

Grunnnotkun fylgir. Fjaraðgangur eftir tilboði.

Á staðnum, innifalið í kaupverði. Vefviðmótið, staðbundin myndgreining, atburðaupptökur og innskráning með aðgangsstýringu fylgja kaupum á kerfinu. Grunnnotkun á staðarnetinu þarf ekki áskrift eða nettengingu.

Fjaraðgangur er valkvæð þjónusta gegn gjaldi. Aðgangurinn fer um gátt Blábergs: Stöðusýn tengir sig út um dulkóðuð göng og þú opnar kerfið í vafra. Fjaraðgangur þarf nettengingu. Við gerum tilboð í fjaraðgang og þjónustu miðað við þínar þarfir. Búnaðinn má kaupa eða leigja eftir samkomulagi.

Atvikaleit fyrir húsfélög

Bláberg getur annast atvikaleit að beiðni stjórnar eða tilnefnds tengiliðar húsfélagsins. Við förum yfir upptökurnar og finnum viðkomandi myndskeið, svo húsfélagið þurfi ekki sjálft að sinna leitinni. Þjónustan er valkvæð og veitt samkvæmt samkomulagi og tilboði.

Viðbætur sem vinna fyrir þig

Hægt er að bæta við skýrslum og greiningu eftir þörfum:

  • "Hvað gerðist í nótt": Allar hreyfingar næturinnar teknar saman í eitt yfirlit sem þú lest á augabragði, í stað þess að fara í gegnum upptökur.
  • Skýrsla í tölvupósti: Sjálfvirkt yfirlit sent til þín á hverjum morgni eða vikulega, eftir því sem hentar.
  • Timelapse: Heill dagur hverrar myndavélar þjappaður í stutt myndband.
  • Talning: Kerfið telur fólk sem kemur og fer, gagnlegt fyrir verslanir, vinnustaði, ferðaþjónustu og viðburði

Við förum yfir hvaða viðbætur henta þér. Innihald þjónustunnar og verð koma fram í tilboði.

Bæði hefðbundin og gáfuleg upptaka

Hver Hörpusýn myndavél tekur einnig upp sjálfstætt á innbyggt 128GB SD kort (u.þ.b. 10 til 14 daga upptaka) sem tryggir samfellda vöktun jafnvel þó staðarnetið detti út. Stöðusýnin bætir miðlægri atburðaupptöku og snjallri leit ofan á það.

Svona kemst þú af stað

  1. Ókeypis athugun: Við skoðum myndavélarnar og netið sem er fyrir hjá þér og segjum hreint út hvað Stöðusýn myndi bæta við.
  2. Uppsetning: Stöðusýn er tengd á staðnum, yfirleitt tilbúin samdægurs.
  3. Innskráning: Þú opnar vefslóðina þína og allt er á einum stað.

Virkar með þessum myndavélum

Stöðusýn vinnur með Hörpusýn og Léttsýn frá Bláberg. Einnig er hægt að tengja myndavélar frá Hikvision, Dahua, Reolink, Amcrest og Uniview sem bjóða staðbundinn myndstraum um ONVIF eða RTSP. Virkni fer eftir gerð og stillingum. Sendu okkur gerð myndavélarinnar og við staðfestum tengingu áður en þú kaupir.

Hvað þarf með?

Stöðusýn vinnur með Hörpusýn og Léttsýn myndavélum og POE switch. Ein Stöðusýn þjónar einni staðsetningu (einu netkerfi). Hafðu samband og við aðlögum lausnina að þínum þörfum og aðstæðum.