Skip to content

Öryggiskerfi – lausnir fyrir heimili og fyrirtæki

BLÁBERG · ÖRYGGISKERFI

Öryggi sem passar
þínu húsnæði.

Wi‑Fi getur nægt heima. Fyrir fyrirtæki og bústaði mælum við með stöð með innbyggðu 4G. Veldu síðan skynjara fyrir þær dyr, glugga og rými sem þú vilt vakta.

Hvaða kerfi þarf ég?Skoða alla pakka

Hvar ætlarðu að nota kerfið?

HEIMILI · WI‑FI

Einföld byrjun heima

Wi‑Fi stöð hentar þegar nettenging heimilisins er stöðug. Byrjaðu á heimilispakka og bættu við skynjurum eftir þörfum.

Tilkynningar í síma þurfa virkt internet. 4G stöð er einnig valkostur fyrir heimili.

Skoða heimilispakka →

FYRIRTÆKI · 4G + WI‑FI

Fleiri leiðir til tengingar

Stöð með innbyggðu 4G getur sent tilkynningar um farsímanetið. Bættu við takkaborði, skynjurum og sírenu eftir aðstæðum.

Skoða fyrirtækjapakka →

BÚSTAÐUR · 4G

Án fastrar nettengingar

Veldu stöð með innbyggðu 4G og skynjara fyrir innganga og helstu rými. Vatns- og reykskynjarar geta bætt við yfirsýn.

Stöðin þarf rafmagn, upphitað innirými og farsímasamband. SIM-kort og virk þjónusta þurfa að vera til staðar.

Skoða 4G stöð →

FINNDU GÓÐAN UPPHAFSPUNKT

Hversu stórt kerfi þarf?

Svaraðu nokkrum spurningum. Við sýnum grunnpakka og þá aukaskynjara sem þarf miðað við valið.

Tillagan er upphafspunktur. Veggir, hæðir, fjarlægðir og staðsetning ráða drægni; flatarmál eitt og sér segir ekki til um þekju. Fjöldi reykskynjara þarf sérstakt mat.

Veldu grunninn. Stækkaðu þegar þarf.

Wi‑Fi heimilispakki Blábergs

HEIMILISPAKKI

Öryggiskerfi

Wi‑Fi stöð, 1 hurða- og gluggaskynjari, 1 hreyfiskynjari, 1 reykskynjari, 1 innimyndavél og fjarstýring.

Skoða pakkann
Stærri Wi‑Fi heimilispakki Blábergs

FLEIRI SKYNJARAR

Öryggiskerfi+

Wi‑Fi stöð, 3 hurða- og gluggaskynjarar, 2 hreyfiskynjarar, 2 reykskynjarar, 1 vatnsskynjari, 2 innimyndavélar og fjarstýring.

Skoða pakkann
Öryggisstöð með innbyggðu 4G og Wi‑Fi

INNBYGGT 4G + WI‑FI

4G grunnkerfi

4G/Wi‑Fi stöð, 2 hurða- og gluggaskynjarar, 1 hreyfiskynjari og 2 fjarstýringar. Bættu við búnaði fyrir þitt húsnæði.

Skoða 4G kerfið

Fyrirtækjapakki með takkaborði, RFID og aukasírenu →

Bættu við því sem skiptir þig máli

4G stöð og 4G netbúnaður eru ekki sami hluturinn.

Stöðin með innbyggðu 4G tengir öryggiskerfið við farsímanet. Wi‑Fi myndavélar þurfa áfram eigin nettengingu. Núverandi pakkinn „Öryggi Sumarbústaður“ notar Wi‑Fi stöð með sér 4G netbúnaði.

Fáðu aðstoð við val og uppsetningu

Sendu okkur stærð húsnæðis, fjölda hæða og innganga. Við hjálpum þér að velja réttu stöðina, skynjarana og staðsetningarnar.

Fá ráðgjöf og tilboðAðstoð við uppsetningu

Hér að neðan finnur þú meiri upplýsingar og skjárkot úr appinu sem koma þér enn lengra í uppsetningunni

Takk fyrir að versla við Bláberg.is

Ef þú hefur spurningar getur haft samband við okkur á spjallinu á þessari síðu eða með símanúmeri eða email sem má finna neðst á þessari síðu.

Náðu í appið!

Náðu í appið!

Skannaðu QR kóðann eða smelltu hér á takkan hér fyrir neðan!

Hér!
DreamCatcher Life, einfaldleiki og sjálfvirkni

DreamCatcher Life, einfaldleiki og sjálfvirkni

Með appinu tengirðu allar snjallvörurnar okkar saman og þrátt fyrir ótrúlegan fjölda stillingarmöguleika þá er uppsetningin mjög einföld og notendavæn.

Settu upp senur og reglur í appinu til að slökkva ljós sjálfkrafa eða láta ryksugana byrja að þrífa um leið og öryggiskerfið er sett á vörð.

Myndavélin tekur upp myndefni í nokkra daga sem hægt er að skoða í appinu. Einnig getur þú sett upp reglur til að slökkva á myndavélum þegar kerfið er tekið af, þegar þú kemur heim. En einnig færðu skilaboð þegar myndavélin skynjar manneskjur og þú færð ekki óþarfa skilaboð um falskar hreyfingar.

Með örfáum stillingum verður heimilið þitt að snjallheimili!

Snjallar flýtileiðir

Snjallar flýtileiðir

Hvert tengt tæki í appinu hefur fjóra flýtihnappa sem sýna helstu stillingar og flýtileiðir.

Við hlustum!

Appið er í stöðugri þróun til að aðlagast þörfum viðskiptavina. Endilega sendið okkur skilaboð eða sendið “feedback” í gegnið appið og við tökum breytingar þínar til greina við næstu uppfærslu á appinu.

Settu á vörð!.. Hvaðan sem er

Settu á vörð!.. Hvaðan sem er

Með DreamCatcher life appinu getur þú stjórnað öryggiskerfinu þínu hvaðan sem er.

Þú færð viðvörunartilkynningar í rauntíma, getur skoðað gamlar færslur, sett upp senur og fleira!

Snjöll AI-Myndavél

Snjöll AI-Myndavél

Þegar myndavélin skynjar hreyfingar manna eða barnagrátur, sendir hún þér rauntíma tilkynningu. Einnig merkir hún inn allar hreyfingar í appinu svo auðvelt er að skoða þær.

Myndavélin tengist WiFi og hægt er að hreyfa og snúa henni í allar áttir í gegnum appið.

Snjöll ljósastýring

Snjöll ljósastýring

Með snjöllu ljósaperunum okkar og DreamCatcher life appinu eru engin takmörk!

Stilltu birtuna og mýkt ljóssins.

Settu á hvaða lit sem er.

Settu upp sjálfkrafa stillingar fyrir ljósin þín til að slökkva og kveikja á þeim. T.d. við sólsetur og sólarupprás.

Snjallar senur

Snjallar senur

DreamCatcher life appið gerir þér kleift að búa til mismunandi senur sem hægt er að aðlaga eftir þínum þörfum.

Með Amazon Alexa eða Siri® geturðu auðveldlega stjórnað viðkomandi senum með röddinni þinni í gegnum appið.