Skip to content

Beint streymi

Bláberg · Beint streymi

Opnaðu útsýnið.
Deildu augnablikinu.

Sýndu staðinn þinn í beinni á vefnum. Við hjálpum þér að velja myndavélar, setja upp streymi og varðveita augnablik sem fólk vill sjá aftur.

Ræðum þína útsendinguSjá streymisvefinn ↗
Norðurljós yfir landslagi í raunverulegri upptöku Blábergs frá 5. október 2026.
Raunverulegur rammi úr upptöku Norðurljósavaktar Blábergs. Dæmi úr safni, ekki bein mynd.
Þinn staður

Ein myndavél eða fleiri sjónarhorn. Við metum staðsetningu, lýsingu og nettengingu með þér.

Þín vefsíða

Streymið getur birst á sérstakri síðu eða verið fellt inn á núverandi vef.

Þitt úrval

Veldu myndskeið og stillimyndir sem eiga að lifa áfram eftir að augnablikið er liðið.

Fleiri leiðir til að sýna staðinn

Hvar gæti streymi nýst þér?

Við byggjum á reynslu okkar af myndavélauppsetningum og streymisvef Blábergs. Hér eru dæmi um notkun sem við getum útfært með þér.

01 / GOLFVELLIR

Sjá völlinn áður en lagt er af stað

Útsýni yfir völlinn, veðrið og aðstæður. Sýnileg þjónusta fyrir félagsmenn og gesti, beint á vef golfklúbbsins.

02 / KIRKJUR

Nær þeim sem eru fjarri

Skoðum streymi frá messum, tónleikum og öðrum viðburðum með einu til þremur sjónarhornum og hljóði við hæfi.

Skoða hugmynd að kirkjuuppsetningu →
03 / HAFNIR

Lifandi gluggi að höfninni

Sýndu útsýni, sjólag og mannlíf með vel völdu sjónarhorni. Hentar til að kynna svæðið og gefa gestum mynd af aðstæðum.

04 / VEGIR OG AÐKOMA

Sjáðu aðstæður á staðnum

Útsýni yfir aðkomu, snjóalög eða næsta nágrenni. Gagnlegt fyrir áfangastaði, ferðaþjónustu og staði þar sem veður skiptir máli.

Vefmynd er viðbótarupplýsing; hún kemur ekki í stað opinberra upplýsinga um færð og öryggi.

Beint streymi / Norðurljós

Norðurljósin sýna möguleikana.

Norðurljósavakt Blábergs sameinar lifandi mynd, upplýsingar um aðstæður og upptökur af fyrri sýningum. Gestir geta skoðað nýjustu myndskeiðin eða raðað þeim eftir styrkleika sýningar.

Þetta er eitt dæmi um hvernig vefmyndavél getur orðið að áfangastað sem fólk kemur aftur á.

Opna Norðurljósavakt ↗

Vaktin er tilraunaverkefni. Útsýni og norðurljós ráðast af veðri og aðstæðum.

Raunverulegt skjáskot af safni Norðurljósavaktar með forskoðunarmyndum og dagsetningum myndskeiða.
Skjáskot af streymi.blaberg.is: myndskeiðasafn með dagsetningum og forskoðun.
Úrval · Augnablik sem eiga að lifa áfram

Í beinni núna. Í úrvali síðar.

1. Finndu augnablikið

Veldu atburð, tímabil í upptöku eða stillimynd úr myndavél.

2. Vistaðu í Úrval

Stjórnandi vistar sérstakt eintak af klippunni eða myndinni, óháð venjulegri yfirskrift upptaka.

3. Veldu hvað birtist

Birta má valin augnablik á opinberum streymisvef. Aðrar upptökur verða ekki sjálfkrafa opinberar.

Úrval byggir á upptökum og geymslu í Stöðusýn. Við staðfestum samhæfni, geymslurými og birtingu fyrir hverja uppsetningu. Myndskeiðasafn Norðurljósavaktar hér að ofan er raunverulegt dæmi um endurspilun.

Hugmynd að prufuverkefni

Ein til þrjár vélar.
Skýr mynd og gott hljóð.

Fyrir kirkjur viljum við fyrst skilja núverandi vinnulag: hvað er sent út, hver sér um það og hvað mætti gera einfaldara?

01 · YfirsýnFast sjónarhorn yfir athöfnina.
02 · RæðustóllNærmynd af þeim sem talar.
03 · Kór og tónlistSérstakt sjónarhorn á tónlistarflutning.

Við getum skoðað eina mynd í einu, val á sjónarhorni eða samsetta mynd með öllum þremur. Hljóð gæti komið frá ytri hljóðnema eða hljóðkerfi kirkjunnar, eftir því hvað hentar rýminu.

Hvað þarf að prófa? Hljóð og samstillingu, nettengingu, myndgæði og hver sér um ræsingu og myndskipti. Núverandi opnu vefmyndavélastraumar Blábergs eru hljóðlausir; kirkjuútsending með hljóði krefst sérstakrar útfærslu og prófunar.

Ræða prufuverkefni við Snorra

Algengar spurningar

Þarf manneskja að stjórna útsendingunni?

Fast sjónarhorn getur gengið sjálfvirkt eftir uppsetningu. Útsending þar sem skipt er á milli nærmynda, aðdráttur breyttur eða hljóð stillt þarf yfirleitt stjórnanda eða fyrirfram skilgreinda sjálfvirkni. Fyrir viðburði ákveðum við verklag um ræsingu, eftirlit og lokun útsendingar.

Geta fleiri sjónarhorn birst samtímis?

Á streymisvef Blábergs má þegar sjá fleiri en eina myndavél á sömu síðu. Samsett viðburðaútsending með þremur sjónarhornum og sameiginlegu hljóði er sérstök uppsetning sem þarf að prófa með viðkomandi búnaði.

Getum við notað núverandi búnað?

Sendu okkur gerðir myndavéla, upplýsingar um nettengingu og, fyrir viðburði, hljóðkerfið. Við metum samhæfni áður en nýr búnaður er valinn. Upplausn og gæði útsendingar ráðast af búnaði og tengingu.

Hvað kostar uppsetningin?

Við gerum tilboð eftir fjölda véla, tengingu, uppsetningu, hýsingu og geymslu. Markmiðið er hagkvæm lausn og skýr kostnaður, með núverandi búnaði þar sem það hentar.

Byrjum á staðnum þínum

Hvað viltu sýna í beinni?

Segðu okkur frá staðnum, fyrirhugaðri notkun og búnaði sem er þegar til staðar. Við finnum næstu skref með þér.

Fá ráðgjöf og tilboð

Við ákveðum saman sjónarhorn, birtingu og aðgang. Upplýsingar um persónuvernd.

Hér að neðan finnur þú meiri upplýsingar og skjárkot úr appinu sem koma þér enn lengra í uppsetningunni

Takk fyrir að versla við Bláberg.is

Ef þú hefur spurningar getur haft samband við okkur á spjallinu á þessari síðu eða með símanúmeri eða email sem má finna neðst á þessari síðu.

Náðu í appið!

Náðu í appið!

Skannaðu QR kóðann eða smelltu hér á takkan hér fyrir neðan!

Hér!
DreamCatcher Life, einfaldleiki og sjálfvirkni

DreamCatcher Life, einfaldleiki og sjálfvirkni

Með appinu tengirðu allar snjallvörurnar okkar saman og þrátt fyrir ótrúlegan fjölda stillingarmöguleika þá er uppsetningin mjög einföld og notendavæn.

Settu upp senur og reglur í appinu til að slökkva ljós sjálfkrafa eða láta ryksugana byrja að þrífa um leið og öryggiskerfið er sett á vörð.

Myndavélin tekur upp myndefni í nokkra daga sem hægt er að skoða í appinu. Einnig getur þú sett upp reglur til að slökkva á myndavélum þegar kerfið er tekið af, þegar þú kemur heim. En einnig færðu skilaboð þegar myndavélin skynjar manneskjur og þú færð ekki óþarfa skilaboð um falskar hreyfingar.

Með örfáum stillingum verður heimilið þitt að snjallheimili!

Snjallar flýtileiðir

Snjallar flýtileiðir

Hvert tengt tæki í appinu hefur fjóra flýtihnappa sem sýna helstu stillingar og flýtileiðir.

Við hlustum!

Appið er í stöðugri þróun til að aðlagast þörfum viðskiptavina. Endilega sendið okkur skilaboð eða sendið “feedback” í gegnið appið og við tökum breytingar þínar til greina við næstu uppfærslu á appinu.

Settu á vörð!.. Hvaðan sem er

Settu á vörð!.. Hvaðan sem er

Með DreamCatcher life appinu getur þú stjórnað öryggiskerfinu þínu hvaðan sem er.

Þú færð viðvörunartilkynningar í rauntíma, getur skoðað gamlar færslur, sett upp senur og fleira!

Snjöll AI-Myndavél

Snjöll AI-Myndavél

Þegar myndavélin skynjar hreyfingar manna eða barnagrátur, sendir hún þér rauntíma tilkynningu. Einnig merkir hún inn allar hreyfingar í appinu svo auðvelt er að skoða þær.

Myndavélin tengist WiFi og hægt er að hreyfa og snúa henni í allar áttir í gegnum appið.

Snjöll ljósastýring

Snjöll ljósastýring

Með snjöllu ljósaperunum okkar og DreamCatcher life appinu eru engin takmörk!

Stilltu birtuna og mýkt ljóssins.

Settu á hvaða lit sem er.

Settu upp sjálfkrafa stillingar fyrir ljósin þín til að slökkva og kveikja á þeim. T.d. við sólsetur og sólarupprás.

Snjallar senur

Snjallar senur

DreamCatcher life appið gerir þér kleift að búa til mismunandi senur sem hægt er að aðlaga eftir þínum þörfum.

Með Amazon Alexa eða Siri® geturðu auðveldlega stjórnað viðkomandi senum með röddinni þinni í gegnum appið.