Stöðusýn
Stöðusýn er hjartað í Hörpusýn myndavélakerfinu. Lítil en gríðarlega öflug snjalltölva sem tekur við myndefni frá öllum myndavélum á staðnum og vinnur alla gervigreind, hreyfiskynjun og manngreiningu, hratt og örugglega á staðnum um leið og hlutirnir gerast. Stöðusýn er viðbót ofan á myndavélarnar sem þú átt nú þegar, hvort sem það eru Hörpusýn eða Léttsýn vélar; ekkert er rifið niður og appið sem fylgdi vélunum virkar áfram.
Það sem Stöðusýn gerir best
- Allar myndavélar á einum skjá í tölvu: Ekki bara í símanum. Tölva, sími og spjaldtölva einnig er hægt að hafa fleiri en eina staðsetningu.
- Gervigreind sem greinir í sundur manneskju, dýr og bíl: Gervigreindin greinir í rauntíma. Tilkynningar verða marktækar og rétta klippan finnst á sekúndum í stað þess að spóla yfir langt tímabil.
- Miðlæg atburðaupptaka utan myndavélanna: Safnar öllum hreyfingaratburðum á innbyggðan disk (u.þ.b. 200 til 500GB), rétt eins og NVR-upptökutæki gerir, en með nútímalegu vefviðmóti, innskráningu og aðgangsstýringu í stað NVR-valmynda.
- Öruggur fjaraðgangur, ekkert opnað út á internetið: Dulkóðuð VPN-fjartenging tryggir aðgang hvar sem þú ert í heiminum en kerfið virkar líka án internets: upptökur og áhorf á staðarneti halda áfram þó netsambandið detti út.
- Vex með þér: Stöðusýn er lítil tölva en ekki lokað tæki, svo hægt er að bæta við tengingum, búa til aðgangsstýrðar vefmyndavélar og margt fleira. Raundæmi: opnu vefmyndavélarnar á streymi.blaberg.is eru keyrðar á Stöðusýn.
- Ræður við allt að 16 myndavélar með fullri gervigreind (fer eftir umsvifum svæðisins). Fyrir stærri kerfi bjóðum við öflugri Stöðusýn tæki.
Verðlíkanið: aðgangur á staðnum fylgir, fjaraðgangur er áskrift
Á staðnum, innifalið í kaupverði, engin mánaðargjöld. Þegar Stöðusýn er komin upp færðu fulla virkni á staðarnetinu: vefviðmótið, gervigreindina, atburðaupptökuna og innskráningu með aðgangsstýringu. Þetta virkar áfram þó áskrift sé ekki til staðar, og líka þó internetið detti út.
Fjaraðgangur, með mánaðarlegri áskrift. Viljirðu sjá kerfið hvaðan sem er í heiminum bætir áskriftin við dulkóðaðri VPN-fjartengingu, stöðugum öryggis- og hugbúnaðaruppfærslum og heilsuvöktun kerfisins frá Bláberg. Ein áskrift fyrir hverja staðsetningu, verð frá 5.900 kr á mánuði, engin gjöld fyrir hverja myndavél. Búnaðinn sjálfan má leigja eða kaupa.
Innifalið í áskriftinni: snjöll skýrslugerð og greining
Áskriftin er ekki bara fjaraðgangur. Hún lætur kerfið vinna fyrir þig:
- "Hvað gerðist í nótt": Allar hreyfingar næturinnar teknar saman í eitt yfirlit sem þú lest á augabragði, í stað þess að fara í gegnum upptökur.
- Skýrsla í tölvupósti: Sjálfvirkt yfirlit sent til þín á hverjum morgni eða vikulega, eftir því sem hentar.
- Timelapse: Heill dagur hverrar myndavélar þjappaður í stutt myndband.
- Talning: Kerfið telur fólk sem kemur og fer, gagnlegt fyrir verslanir, vinnustaði, ferðaþjónustu og viðburði
Allt þetta er innifalið í áskriftinni, engin auka gjöld á hverja myndavél.
Bæði hefðbundin og gáfuleg upptaka
Hver Hörpusýn myndavél tekur einnig upp sjálfstætt á innbyggt 128GB SD kort (u.þ.b. 10 til 14 daga upptaka) sem tryggir samfellda vöktun jafnvel þó staðarnetið detti út. Stöðusýnin bætir miðlægri atburðaupptöku og snjallri leit ofan á það.
Svona kemst þú af stað
- Ókeypis athugun: Við skoðum myndavélarnar og netið sem er fyrir hjá þér og segjum hreint út hvað Stöðusýn myndi bæta við.
- Uppsetning: Stöðusýn er tengd á staðnum, yfirleitt tilbúin samdægurs.
- Innskráning: Þú opnar vefslóðina þína og allt er á einum stað.
Hvað þarf með?
Stöðusýn vinnur með Hörpusýn og Léttsýn myndavélum og POE switch. Ein Stöðusýn þjónar einni staðsetningu (einu netkerfi). Hafðu samband og við aðlögum lausnina að þínum þörfum og aðstæðum.