Vá, norðurljós!
Þín eigin norðurljósavakt. Með hentugri útimyndavél frá Bláberg og Stöðusýn geturðu fylgst með næturhimninum og fengið norðurljósasýninguna í timelapse.

Myndavélin horfir til himins. Norðurljósavakt í Stöðusýn greinir norðurljós í myndunum og setur saman timelapse þegar sýningunni lýkur. Þú getur horft á myndbandið og sótt það. Ef þú vilt deila útsýninu getum við einnig sett upp opinbera birtingu.
Við veljum með þér myndavél sem hentar lítilli birtu og stillum vaktina fyrir þinn stað. Norðurljósavakt er viðbót sem við bjóðum sérstaklega; útsýni, ský og birta ráða því hvað sést.
Norðurljós næturinnar í móttöku hótelsins.
Þetta er þegar í notkun á hóteli: útimyndavél fangar norðurljósin og timelapse úr Stöðusýn er sýnt á skjá í móttökunni. Þannig geta gestir séð sýningu næturinnar, líka þeir sem sváfu hana af sér.
Timelapse úr þínum útimyndavélum.
Veldu myndavél, hversu oft mynd er tekin og hvaða hluta sólarhringsins þú vilt fylgjast með. Stöðusýn safnar römmunum og setur saman myndband sem þú getur spilað og sótt.
Þannig má fylgjast með framkvæmdum yfir marga daga, sjá veðrið breytast eða endurupplifa fallegt kvöld. Fyrir næturhimininn skiptir máli að myndavélin ráði við litla birtu og hafi gott útsýni til himins.

Finndu það sem gerðist á réttum stað.
Í upptökuleit geturðu valið myndavél og tímabil og síað eftir því sem kerfið greindi, til dæmis fólki, bílum eða dýrum. Með svæðisleit merkirðu ákveðinn hluta myndarinnar og leitar að atvikum þar, svo sem við hlið, inngang eða bílastæði. Á tímalínunni sérðu hvenær eitthvað gerðist og getur farið beint að því.
Sjáðu mynstrið í deginum.
Talning getur sýnt umferð inn á og út af skilgreindu svæði. Næturskýrsla dregur saman atvik næturinnar og tilkynningar geta látið þig vita þegar regla sem þú valdir er uppfyllt. Þú velur hvaða viðbætur nýtast þínum stað.

Kerfið er á þínum stað.
Stöðusýn er myndavélakerfi Blábergs, þróað út frá þörfum viðskiptavina okkar. Upptökur og gervigreindarvinnsla fara fram á staðnum. Áhorf og upptökur á staðarneti halda áfram þótt internetið detti út. Fjaraðgangur er valfrjáls þjónusta um örugga gátt Blábergs og er boðinn sérstaklega.
Fyrir húsfélög getum við einnig annast atvikaleit samkvæmt samkomulagi, að beiðni stjórnar eða tilnefnds tengiliðar. Þannig þarf stjórnin ekki sjálf að sitja yfir upptökum.
Vá, norðurljós!
Norðurljósavakt Blábergs sýnir þessa möguleika í notkun með myndavél frá Bláberg og Stöðusýn. Þar sérðu himininn í beinni, fyrri sýningar í hraðspilun og Vá-einkunn frá 0 til 10. Útsýni, ský og birta hafa áhrif á það sem sést.
Hvað langar þig að geta gert?
Segðu okkur frá staðnum, fjölda myndavéla og því sem þú vilt sjá. Timelapse, talning, skýrslur, tilkynningar og norðurljósavakt eru viðbætur sem við útfærum eftir búnaði og þörfum. Við gerum tilboð í uppsetningu og þá þjónustu sem þú velur.