Skip to content

Stilling á WiFi Router til að nota eingöngu 2.4GHz WiFi merkið

Stundum þarf að slökkva á 5Ghz wifi merki frá router og notast bara við 2.4Ghz til að tryggja að myndavélar geti náð sambandið við routerinn eða hnetur. Það gerist þó ekki alltaf og fer eftir framleiðenda - oftast sjáum við þetta hjá 4G/5G Netbeinum og mjög oft í Huawei 4G netbeinum sem eru algengastir hjá Nova, Símanum og Vodafon. Það er þó auðveld lausn við þessu vandamáli:

Það þarf að logga sig inn á routerinn og finna stillingu sem heitir oft WiFi settings/General settings eða Basic settings og haka úr 5Ghz WiFi merkinu eins og má sjá á skjáskotinu hér að neðan.

Nákvæmar leiðbeiningar í skrefum - Skjáskot eru frá Huawei router:

Skref 1: Þú þarft að vera búinn að tengjast WiFi á routernum fyrst með símanum eða tölvunni sem þú ert að nota

Skref 2: Svo þarftu að setja inn IP tölu í vafra í síma eða tölvu sem stendur aftaná routernum. Oft er username: admin eða Admin ef það stendur ekki

Skref 3: Þú notar Username og password sem má finna aftaná router líka til að skrá þig inná stillingarnar (ekki WiFi passwordið)

 

 Skref 4: Þú þarft að finna "WiFi settings" í efsta flipanum og slökkva á 5Ghz

 

Skref 5 (þarf ekki alltaf): Slökkva á 5Ghz merkinu alveg í "Advanced" eða "Advanced Settings" og svo fara inní "WiFi Advanced settings" ef það er ekki inní Wi-Fi basic settings

 

Hér er mikilvægt að hafa bara hakað í 2.4GHz til að tryggja að myndavélin parist við netið þitt

Hér er dæmi um leiðbeiningar hjá Nova https://support.nova.is/hc/is/articles/360010843917-Huawei-H112-372-5G-box-Stillingar

 

Ef þú hefur frekari spurningar þá máttu endilega senda okkur póst á blaberg@blaberg.is - Takk!

 

Next article Öryggismyndavélar á stórum skjá