POE/WiFi Öryggismyndavél 2K 64GB
Þolir íslenska veðrið og vind!
Þessi úti öryggismyndavél þolir íslenska veðrið og vind og tekur upp í 2K. Skynjar einnig hreyfingu og mannaferðir og tekur beint upp á innifalið minniskort til að spila fyrir þig í símanum þínum hvar sem er. Vélin er einnig með innbyggt flóðljós og nætursjón.
Þessi myndavél tengist í annaðhvort í Ethernet eða WiFi (öflugt loftnet fylgir), hvort sem þér hentar. Þó er best að nýta sér þess vél vegna POE stuðnings hennar, því þá er uppsetning töluvert auðveldari.
Það sem þarf fyrir POE uppsetningu: Ekkert nema ethernet kapal frá POE switch.
Með myndavélinni fylgir POE (Power over ethernet) millistykki sem passar inn í venjulega dós og svínvirkar. Við eigum einnig til dós sem festist aftaná vélina eins og sýnt er á annarri myndinni en það fylgir ekki með.
Myndavélin notast við Tuya Smart appið (eða Smart life) og leyfir þér að skoða margar myndavélar á sama tíma og einnig myndavélina úr dyrabjöllinni okkar.
Eiginleikar
- Upptaka á SD kort á vélinni.
- Tengist við Ethernet (POE) eða WiFi og þú fylgist með í Tuya appinu hvaðan sem er!
- Event upptaka fyrir hreyfingar
- Hægt er að afmarka svæði sem skynjar hreyfingu
- Infrared nætursjón
- Þægilegt að skoða all myndefni yfir seinustu vikur á 64GB SD kortinu sem fylgir.
- Ef stillt er á upptöku við hreyfingu og það er hreyfing x5 á dag þá getur þú skoðað myndefni marga mánuði aftur í tíman án þess að greiða fyrir geymslu á gögnunum
Í kassanum:
- Myndavél með 64GB minniskorti
- Á enda myndavelar er Ethernet (female) tengi, 12V (female) power tengi, reset takki
- 4 skrúfur og tappar
- 12V (male) aflgjafi í innstungu sem er 1meter (12Wött)
- POE (Power over ethernet) millistykki sem tekur við POE merki og færir yfir í venjulegt Ethernet (male) og 12V (male) sem tengist í myndavélina
- WiFi loftnet
- Hulsa yfir loftnetstengi ef þú ætlar að nota POE því viljum við verja loftnetstengið fyrir vatni og hnjaski.
Aukahlutir fyrir ýmsar tegundir uppsetninga - selt aukalega:
- 2 metra 12V framlengingarsnúra
- 230V í 12V spennubreytir ef þú ert með rafmagn úti í dós eða þakskeggi og vilt nota vélina á wifi. Þá passar þessi í flestir gerðir dósa.
Uppsetning
Þessi vél er frábrugðin WiFi myndavélinni okkar aðallega í uppsetningu: núna þarf kapall í gegnum vegg en ekki inn um glugga eða rifur eins og á WiFi myndavélinni.
Tækniupplýsingar
Myndgæði |
2K QHD (4.0 MP) |
Wi-Fi |
Já, 2.4Ghz |
Ethernet PEO |
Já (RJ45 tengi – Venjulegur net kapall) PowerOverEthernet (PEO): er í boði með litlu millistykki sem tekur við POE kapli og gefur út 12V og Ethernet sem fer í myndavélina Styður líka ONVIF / RTSP til þess að stream-a á Youtube/Facebook eða opna í 3rd party viðmótum. |
Sjónsvið |
95° |
Hreyfanleiki |
Nei |
Nætursjón |
Infrared nætursjón með stillanlegu sterku ljósi, virkjast við skynjaða hreyfingu ef stillt þannig |
Hljóð |
Innbyggður hátalari og hljóðnemi fyrir samskipti |
Hreyfiskynjun |
Með myndgreiningu á tilgreindu svæði og greinir sérstaklega fólk |
Myndflaga |
1/3" Progressive CMOS |
Stærð vélar |
7 x 7 x 18 cm |
IP Stuðull |
IP65 |
Hita- og rakaþol |
-20°C to 60°C |
Litur |
Hvítur |
Aflgjafi |
12VDC 1A. Fast tengi úr myndavél. Spennubreytir í innstungu fylgir. Hentar þegar þú vilt nýta þér WiFi möguleikann. POE stuðningur til staðar með millistykki sem fylgir alltaf. |
Geymslurými |
64GB micro SD kort innifalið |
Skýjastuðningur App í síma |
Já en er valkvætt Tuya Smart eða SmartLife |